Það er erfitt að eiga ketti… Þegar ég fékk fyrsta köttinn minn, hélt ég að hann mundi alltaf vera hjá mér. Því miður varð hann aðeins 14 mánaða. Það var keyrt á hann. Konan sem ók á hann, tók hann upp og fór með hann heim. Þaðan hringdi hún í mig og sagði mér hvað gerst hafði. Stuttu seinna fór ég til hennar og sótti kisuna mína. Ég var miður mín en ég held að konan hafi liðið mjög illa. Hún var sjálf kattaeigandi og var alveg miður sín að sjá. Var með tárin í augunum þegar ég kom til...