Nýjasti aukapakkinn ber heitið NightLife og verð ég að segja að hann er mjög góður. Persónulega finnst mér hann miklu skemmtilegri en University. Nú er komið svokallað DownTown hverfi, eða Miðbæjarhverfi. Þar eru fullt af veitingahúsum, keilusölum, skemmtistöðum og ég veit ekki hvað. Hægt er að búa niður í DownTown. Ég lét eina konuna mína flytja þangað, hún býr við hliðina á skemmtistað, stanslaust stuð og stutt í djammið. Áður var ekki hægt að sjá húsin í kring þegar maður lék fjölskyldu....