Þetta hefur verið vægast sagt ömurlegur dagur. Ég heiti Axel og er 15 ára strákur. Ég mætti í skólann í dag, úrillur eins og vanalega. En það var smá breyting. Ég kom inní andyrið á skólanum og allir störðu á mig, ég fattaði ekki neitt, ekki neitt fyrr en Anna benti á mig og hló. Ég var búinn að fá mig fullsaddann á henni. Hún var svo vön að vera leiðinleg. Ég kom inn í stofuna og tók þá eftir því að ég var með svaðalega standpínu og ég dreif mig á klósettið og skrúfaði frá ísköldu vatni og...