Sælir Eins og við höfum rætt hérna áður verður nýtt fyrirkomulag, og nýjar reglur á Warhammer Fantasy mótum eftir áramót. Þið hafið fengið tækifæri til að koma með athugasemdir, og nú hefur GunniT farið í málið og samþykkt eftirfarandi reglur fyrir næsta mót. Dagsetningin verður vonandi fyrsta helgin í janúar, 4.-5. janúar. Ef það gengur ekki frá Nexus séð er stefnt á helgina þar á eftir. Allavega, hér er nýjasta eintakið af reglunum, og svona mun þetta líklega líta út þegar þar að kemur....