Já, ég hef venjulega verið talin með skrítinn strákasmekk. Oft hef ég “sýnt” vinkonum mínum kærasta/strák sem ég hef verið hrifin af og þá hefur komið hneykslunarsvipur á þær. En smekkur manna er mismunandi. Gætir beðið þær vinsamlegast um að setja ekki svona út á gaurinn. Ég hef beðið vinkonur mínar um að ef ég fyndi mer einhvern sem þeim finnst forljótur að vera ekki að minnast alltaf á það við mig. Frekar segja “Ne, ekki kannski mín týpa” svona eins og einu sinni en það er nóg :)