Hann kom til okkar í félagsfræði í fyrra… Sumir í sumum hópum voru svo reiðir við hann að þeir löbbuðu út, aðrir lentu í hávaðarifrildi en aðrir gerðu bara grín að honum. Hann er fáviti.
Send* og ég bað um það. Skóli frá 8.30-12 og svo activity lessons. Fara frítt í tívolí, á sædýrasöfn, í keilu og svoleiðis. Tvær vikur í útlöndum án foreldra…
Ferð í enskuskóla til Englands í 2 vikur, myndavél, kassagítar, lampa O_o, styttur, 56002 og e-ð…. Vá. Það eru næstum 3 ár síðan ég fermdist. Ég er svo gömul! x'D
Þú átt að gera farið í enskuskóla sem virkar eins og skiptinemi nema bara nokkrar vikur. Veit ekki hvort það sé hægt til Bandaríkjanna en spurðu bara á ferðaskrifstofum. Ég fór í sumarenskuskóla þegar ég var 14 og það var rosa gaman.
Veislan mín var haldin í KFUM og K sal í Sunnuhlíð á Akureyri. Vorum með svona blátt þema, hvítir dúkar á borðunum með svona bláum dúkum sem eru minni (sem voru bara svona yfir miðjunni) og svo bláleita steina á borðinu. Svo voru auðvitað kökur (af því amma mín ELSKAR að baka -_-") og það voru ekkert rosalega margir. En það var samt rosagaman ^^,
Já. Kannski er það bara ég en ég tók amk mikið eftir þessu í mínum bekk. Maður sá það bara með því að labba inn í stofuna - “vinsæla, svala” fólkið sat nær hurðinni, “venjulega, pínulítið nördalegt en samt ekki” fólkið sat í miðjunni og “nördarnir” sátu við gluggann… Og það var einhvern vegin bara ALLTAF þannig :/
Æj það er nú svolítið erfitt. Persónulega finnst mér ógeðslega illa gert af stelpunni ef hún vill ekki leyfa stráknum að eiga barnið sitt en á móti kemur að HÚN þarf að ganga með barnið. Ég er ekkert alltof hrifin af fóstureyðingum og myndi aldrei gera það sjálf en fólk og þeirra aðstæður eru mismunandi. En ég get ekki ákveðið mig á þessu máli af því þau eiga barnið bæði en hún þarf að ganga með það í 9 mánuði og ganga í gegnum fæðinguna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..