Ég held einfaldlega að allir geri þetta svolítið ósjálfrátt. Þegar maður er búinn að vera í smá tíma í sambandi, hvort sem það er fyrsta eða annað eða 100asta þá á einhverjum tímapunkti kemur það fyrir að maður hugsi hvort þetta sé það sem maður vill, jafn vel þó maður elski manneskjuna út af lífinu. Sumir komast að því að þetta ER það sem þeir vilja, aðrir ekki. Það eru ekki bara strákar sem gera þetta, og alls ekki bara í fyrsta sambandi :)