Bara smá spurning, finnst þér þú vera feit/líta illa út? Þú ert kannski ekki með átröskun, allavega ekki viljandi sýnist mér en þú ert aðeins of létt. Reyndu bara borða meira, ekki endilega óhollt til að þyngjast, bara meira. Mig minnir að maður eigi að borða eina stóra/heita máltíð á dag og helst í hádeginu. Þú verður að borða stóran morgunmat líka og svo er í lagi að narta í ávexti á milli mála. Ég held að það sé aðeins of mikið að borða á 5 klst. fresti…