Ég elska Keane. Fyrri platan finnst mér mjög góð og þar sem ég á hana á geisladisk þá er ég alltaf með hana í ferðaspilaranum [Á ekki iPod]. Spila hann á leið í vinnuna, í vinnunni, þegar ég fer að sofa og um það bil allstaðar annarstaðar sem ég fer. Seinni diskinn á ég bara í tölvunni en ég er mjög sátt við þann disk samt. Lagið Crystal Ball gerir mig bara hamingjusama, þó það hljómi nú svolítið asnalega. Ég hef heldur ekki fundið neitt lag með þeim sem mér líkar ekki við. Mjög góð grein =)