Ég hef verið að láta svona líka =/ Það er einn vinur minn sem ég var svolítið veik fyrir áður en ég byrjaði með mínum núverandi. Ég elska kærastann minn og ég ætla alls ekki að gera neitt til að stofna sambandinu í hættu, en er þá rangt af mér að finnast hinn sætur og þannig… Æji, ég veit það ekki. Svo bara allt í einu einn daginn þá fattaði ég, ég er ekkert hrifin af þessum vini mínum ég vil bara kærastann minn. Hann er allt sem ég þarf. Bara plús að eiga sæta vini ;D