Jæja, þá er komið að því. Ég er að fara af stað með trommukennslu nú í lok janúar. Kennslan verður í æfingahúsnæðinu okkar Changer-manna. Tek fólk í einkatíma. Ég er að prófa þetta kennsludæmi, og því á eftir að koma betur í ljós hvernig þetta verður uppbyggt. Ég ætla samt að leggja áherslu á að leyfa nemendunum að ráða ferðinni svolítið, og fer þá í þá stefnu sem hver og einn vill fara út í, auk þess að fara í grunnatriðin. Fer út í það sem hefur reynst mér vel í gegnum tíðina og spjalla um...