Þetta er saga sem ég gerði í skólanum og vidi deila með ykkur :) Þetta var alltaf svo spennandi. Að læðast á milli húsa og skjóta á hvern þann sem klæddist búningi, hvern þann sem vogaði sér að reyna að stoppa okkur. Við vorum baráttumenn, frelsishetjur, hugsjónamenn í leit að friði og réttlæti. En núna… Það er grenjandi rigning og við hýsumst innan trjánna og bíðum, bíðum eftir að þeir komi og finni okkur. Skotin eru að verða búin, allir vannærðir af margra mánaða feluleik og margir særðir...