En þegar þú flyst til Danmerkur, eða Póllands að þá þarft þú ekki að læra tungumálið þeirra. Svona tal um að útlendingar verði að læra tungumálið er ekkert nema hroki, hvað ætli við getum ekki átt samskipti á ensku eða einhversskonar málamiðlanir, við Íslendingar erum alltof merkileg með okkur, ég mundi glaðlega tala ensku á Íslandi ef ég þyrfti þess, maður hlýtur að geta kyngt stoltinu, stolti sem er hvort eð er ekki upp á marga fiska.