Vá ég fékk fullt af geisladiskum og þeir tengjast allir gullöld nema einn (einhver írafár diskur, “djók” frá félaga mínum). Síðan fékk ég tvær Dylan bækur, ein af þeim er svona úrklippubók og bara með því kúlaðasta sem ég hef séð, fullt af ljósmyndum og litlum bæklingum, ljósrit af árbókinni hans úr skóla, ljósrit beint af handskrifuðum textum (ég ætla að halda í vonina að þetta sé ekki feik) og margt margt fleira.