Þau mál eru langt frá því að vera sambærileg. Smá copy paste af spjallborði. Allir virðast halda að þetta mál með Man. City leikmanninn sé nákvæmlega eins og því eigi að fara eins með málið hans Rio. Man. City maðurinn mætti á æfingu um morguninn og var boðaður í lyfjapróf seinnipartinn, vandamálið er að City maðurinn var nýkominn til Englands og talaði litla ensku og því mjög líklegt að hann hafi misskilið e-ð þau fyrirmæli sem hann fékk. Síðan þurfti hann að fara til þess að sækja móður...