Það vill svo heppilega til að mörgum finnst gaman að lesa alvöru nöldur og láta fólki líða vel með sig. Ekkert svona nöldur eins og; mér er kalt á tánum eða jafnvel mér leiðist enn nenni ekki að gera neitt. Maður vill alvöru nöldur sem kemur einstaka sinnum eins og t.d. ég missti fóstur eða bróðir minn lamdi mig í höfuðið með smásjá. Og oft þá er fólk að nöldra því það vantar hjálp við eitthvað sem það fær oft ef það nöldrar nóg. Svo mér lýst vel á að halda nöldurkorknum á meðan...
Á legsteininn… snilldarhugmynd. Var líka að spá í að tattú “1337” yfir andlitið á mér svo fólk viti það að ég er nagli og get notað tölustafi sem bókstafi!
Tjaa… eins mikið og ég elska þessa gaura þá myndi ég harla ganga í félag sem héti þetta. Í fyrsta lagi heitir hvorugur okkar Snoop eða Dre þannig að þetta er ekki alveg að gera sig… Enn ef þú vilt vinna í því að fá þetta félag þá bara gerirðu það…(ég vona þín vegna að þetta var kaldhæðni)
Byrjar notendanafn þitt ekki á “aaa”? Ég vildi ekki gefa þig upp svona út í bláinn þannig að ég gaf fólki bara vísbendingu til að vinna úr. Og já það gladdi mig að sjá þetta tilgangslausa nöldur hætt. Enda ef það hefði ekki hægt myndu vissir notendur fá ávítun og/eða jafnvel bann!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..