Persónulega þá held ég að það sé mjög mikilvægt að sjá BB á undan Dark Knight. Annars þá mæli ég sterklega með Dark Knight sem mér finnst vera gargasta snilld(en svakalega of hypuð), Batman Begins er góð líka en finnst hún vera mjög ofmetin. En allavega horfðu á Dark Knight ef þig langar.
Meet the Spartans var frumsýnd á afmælinu mínu í US. :( Ég fékk svaka sjokk þegar ég heyrði það. En hinsvegar var Cloverfield frumsýnd á afmælinu mínu á Íslandi sem var skárra. Bætt við 4. september 2008 - 16:25 En annars þá verð ég virkilega reiður í hvert skipti sem ég sé að þessir “leikstjórar” eru að gera nýja mynd. Í guðanna bænum hættiði! HÆTTIÐI!
VÁ! Þetta hlýtur að vera það allra, allra besta fake poster sem ég hef séð! Þessi einstaklingur ætti að vinna við að gera alvöru plaköt því að mörg um þessar myndir vægast sagt söcka. Er samt 99.99% viss um að næsta myndin mun ekki heita “The Dark Knight Returns”.
Sammála með það. Skil vel ef fólki finnst upprunalega myndin sé betri því að mér finnst að helsti gallinn við endurgerðina er að hún er OF lík, Haneke hefði mátt gera nýja hluti. Hinsvegar fannst mér eins og ég væri að horfa á aðra mynd þó að hún hafi verið alveg eins, fannst hún aldrei fyrirsjáanleg og fannst hún virkilega óhugnanleg og sjúklega spennandi. Aðallega af því að ég sá hana í bíó en þar sá ég ekki upprunalegu myndina.
Mér fannst hún miklu betri. Betri myndataka, betri leikstjórn, betra andrúmsloft, betri leikararar og rosaleg tight ass leikstjór, mun meiri tension og spenna. En upprunalega var góð en mér fannst endurgerðin frábær og miklu betri.
Vá hvað þessi var mikil vonbrygði. Fantastic trailer, frábær plaköt og hype og var búinn að bíða eftir þessari mjög lengi, var virkilega spenntur þegar hún kom her útí bíó. Fyrri hlutinn var frábær, segjum fyrstu 20-40 mínúturnar en eftir það fór myndin allsvakalega downhill. SÉ virkilega eftir að hafa eitt 1000 kr. í þessa mynd. > Vona að The Ruins(“hin” R-Rated “hypaði” “sumar” hryllingsmyndin) verði skárri.
Hef ekki séð The Mist því miður, en hefur langað svolítið til í nokkuð langan tíma. Hef heyrt mjög misjafna hluti um hana, á víst að vera týpísk “hate it or love it” mynd, mun einhverntíman checka á henni.
Rosemary´s Baby er að mínu mati besta hryllingsmynd allra tíma. The Shining kemur fljótt á eftir. Hitchcock er alltaf frábær líka Polanski. The Orphanage(El Orfanato) finnst mér vera ein besta hryllingsmynd áratugarins og sú allra besta “nýja”. Annars hef ég sé svo mikið af hryllingsmyndum þannig að listinn er endalaus.
Ég hef aldrei heyrt um þessa mynd en eftir að hafa lesið þessa grein þá finnst mér að ég verði að sjá hana! Ég sá nýlega Funny Games enurgerð Haneke og fannst hún algjörlega frábær, jafnvel miklu betri heldur en upprunalega myndin. Verð að kynna mér fleiri myndir eftir hann eins og þessa og Cache sem mig hefur langað til þess að sjá í langan tíma! Takk fyrir kynna mér fyrir þessari mynd, góð grein!
Ég var einmitt að velta því fyrir mér í gær. En Dexter náði að segja það á undan mér Í hvert einasta sinn sem ég segi einhverjum að ég sé litblindur tekur hann upp alla lausa hluti sem hann sér og: “Hvaða litur er þetta? Hvaða litur er þetta? Hvaða litur er þetta? Hvaða litur…”Ég fecking hata þegar þetta gerist, daginn sem ég komst af því(í skólanum, ógeðslega pínlegt og sjokkerandi by the way XD) þá fékk ég cirka 5000 “Hvaða litur er þetta? En þetta? En þetta? En þetta? En þetta? Hvaða...
Nicolas Cages hands down! Líka Mark Wahlberg. Bætt við 28. júlí 2008 - 18:48 Skipti Marky Mark(hef bara séð eina mynd með honum- reyndar bara af því að hann pirrar mig svo ógeðslega mikið áður en að ég sé myndir með honum) út fyrir Brendan Fraser.
Ætlaði á hana á föstudaginn en hef ákveðið að fara á miðvikudaginn í staðinn, hef nefnilega ALDREI verið jafn spenntur fyrir mynd. Hef verið að drepast og næstum því missa svefn út af spennu í næstum 3 vikur núna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..