Ég fór þann 15.júní-29.júní til Mallorca á stað sem heitir C'an Picafort sem er norðanmegin í landinu, rétt hjá stað sem heitir Alcúdía. Ég gisti á íbúðarhóteli (fór með fjölskyldunni) sem heitir Viva Mallorca, besta hótel sem ég hef komið á, skemmtanir öll kvöld , fyrst fyrir börn síðan fullorðna, á daginn var skemmtidagskrá fyrir alla, t.d. vatnsleikfimi, vantsblak, vatnskörfubolti, köfun og margt margt fleira. Einnig var kaffihús sem byrjaði klukkan 4 og Bingó sem byrjaði á sama tíma, og...