Vill byrja á því að taka það fram að þessi hjól eru EKKI EEU samþykkt og þar af leiðandi er EKKI hægt að götuskrá þau, þau fara á rauð númer og skráð sem torfæruhjól. Þessi hjól eru kínversk og eru ekki á sama stað og KTM, Yamaha, Honda o.s.fr. Þetta eru ekki pro hjól og það er ekki verið að halda slíku fram, enda er ekki við öðru að búast fyrir hjól á þessu verði. Þetta eru ódýr, kínversk hjól og eru upplögð fyrir byrjendur sem vilja kynnast krossinu, eða menn og konur sem vilja leika sér...