Jæja, þannig eru mál með vexti að hægri framtönnin mín er byrjuð aðeins að koma fram, þá meina ég að hún er komin lengra fram heldur en vinstri framtönnin. Og ég var að spá í hvort að það sé einhvernveginn hægt að laga þetta ánþess að fara í tannréttingar og rugl. ( er með mjög flottar tennur, nema smá yfirbit, einn jaxlinn brotin og önnur framtönnin framar )
Jæja, ég var að pæla í hvernig maður á að stilla sneriltrommu þannig að hljóðið verði eins og svona professional trommarar hafa. ( er búinn að senda þetta á hljóðfæri, taka kannski fleiri eftir þessu hér )
Jóhann Hjörleifsson er fæddur í Reykjavík 11. maí 1973 og nam trommu og slagverksleik við Tónlistarskóla F.Í.H. á árunum 1984 til 1992. Auk þess hefur hann sót einkatíma og námskeið í trommuleik bæði hér heima og erlendis. Hann hefur verið starfandi atvinnutónlistarmaður frá árinu 1990 og hefur deilt tíma sínum jafnt á milli þess að vinna við hljóðfæraleik á hljómplötum með t.d.: Sálinni Hans Jóns Míns, Jóni Ólafssyni, Emiliönu Torrini og Björgvini Halldórssyni svo að eitthvað sé nefnt og að...
Nennir einhver að þýða þetta fyrir migg :!:!:!?!!? Start by holding the pen between your ring finger and your pinky around the first joint (the one closest to the tips of your fingers) in such a way that the ‘outside’ end of the pen (the one away from your palm) is a little longer than the ‘inside’ end. Now push your ring finger down so that it curves inwards towards your palm, and let it rotate your pen so that it stands perpendicular to your ring finger. Move your middle finger backwards...
Get ég sent pening til gaurs sem býr í Perú í banka. Segi við kellinguna. Ég er með þúsund kall hérna og ég vil láta senda það á reikninginn hjá félaga mínum í perú. Og það gerist bara um leið ekki senda peningana sko í pósti heldur rafrænt.
Ég er geðveikt á taugunum yfir þessu, en það er nú þannig að ég var heima hjá vini mínum og hann kom með appelsín glas og setti á borðið. Og fartölvan hans er hliðina á glasinu og ég ætla að fara að skrifa á msn og negldi glasinu yfir takkana á tölvunni og hún slökkti á sér. Svo þurrkuðum við hana ógeðslega vel og blésum á milli takkana. Og hún virkaði alveg vel á eftir. En svo þegar ég fór heim. Og var bara að chilla þá hringdi hann og sagði að takkarnir virkuðu ekki en tölvan virkaði alveg...
Hvað er málið með vefstjóra, hann svarar aldrei hérna á korkinum hugmyndir. Hann les þetta örugglega ekki, það eru allir að spurja um þennan edit takka. Það er algjör snilld að hafa það en honum dettur það ekki í hug.
BLÁTT ÓPAL!! Við skorum á Nóa Síríus að byrja framleiða sjálf bragðefnið sem þarf til að búa til bláan Ópal ! Með þessum undirskriftalista ætlum við að vona að við fáum okkar góða nammi aftur. Ætla ég að reyna að halda þessum undirskriftarlista uppi eins lengi og ég get og rennur hann út akkurat eftir ár. Eða 15 september árið 2006. Þá er pælingin að láta Nóa Síríus fá listinn og gá hvað þeir gera. http://www.thepetitionsite.com/takeaction/117791403...
Er andaglas eitthvað hættulegt eins og flestir vilja meina? Ég er orðinn geðveikt forvitinn og vill prófa þetta maður! En ég vill bara vita hvort þetta sé hættulegt og eða eitthvað þannig.
Kvöldið. Ég bý í raðhúsi eða svona lengju. Og ég er með trommusett í herberginu mínu. Herbergið mitt segjum bara að húsið mitt sé nr. 2 í lengjunni. Konan á númer eitt klikkaðist og er að hóta öllu illu. Ég færði mig yfir í annað herbergi og fór með trommurnar með, þá er ég fluttur alveg við vegginn hjá fólkinu nr. 3. Og þar er ég búinn að setta eggjabakka uppá alla veggi. Svo er ég búinn að vera tromma soldið núna uppá síðkastið og nágranninn á númer 3 gerir ekkert. En konan á númer eitt...
Er einhversstaðar á þessum stóra og mikla veraldarvef sem maður getur horft á live útsendingu úr gervitungli og horft niður á heiminn og súmað og svoleiðis?
Vitiði um leik sem maður er að selja svona dóp, fara í aðrar borgir selja dópið dýrara og svona. Maður kaupir svona dóp sveppi, marijuana og svona rugl. Ég var einu sinni alltaf í þessum leik bara man ekki hvað hann heitir. Man einhver eftir þannig leik?
Hvaða efni er best að einangra með og hvar getur maður fengið það? Til dæmis svamp, eggjabakka og svoleiðis. Er nokkur leið til að fá það frítt? Ef svo.. hvar? Og hvar er það ódýrast ef maður ætlar að borga fyrir það?
Sorry að ég sé að pósta þetta hérna en mér langaði bara að spurja hvernig maður býr til html kóða / link þannig að maður beintengist einhverjum ákveðnum höbb á DC ?
Mér langar einmitt núna að fara baka eitthvað eru þið með uppskriftir fyrir mig.. Ég er allaveganna með möndludropa, sítrónudropa, vanilludropa, hveiti, sykur, kókó sem maður bakar með helling af kryddi, kanil, flórsykur.. Hafiði eitthvað gott ;)
Gallabuxur Var að spá í hvar eru ódýrustu karla gallabuxurnur. Þá er ég ekki að meina eitthvað Hagkaups drasl, er að pæla í Diesel og Levi's svoleiðis. Vitiði hvenær og hvort diesel og levis byrji með útsölur í vor?
Jæja, þetta er örugglega ekki fyrsti korkurinn um þetta en nú er þetta byrjað að verða svolítið undarlegt. Ég byrjaði að fá svona smá bólur fyrir hálfu ári og þá var þetta ekkert ég kunni ekkert að gera við þetta og lét þetta alveg í friði og drakk kók, borðaði nammi og fleira svona. En það sem mér finnst svona undarlegt er að ég er bara að fá meira og meira núna. Og afhverju? Jú, það er þannig að ég hætti í kókinu fyrir tveimur til þremur mánuðum, minnkaði nammið og miklu meira en helming,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..