Ég var að koma frá London í dag og fór þar smá hljóðfærabúðarúnt. Á Denmark street eru einhverjar tíu hljóðfæraverslanir og nokkrar aðrar í kringum það svæði. Sjálf Denmark street er ekki nema bara 200m löng og ekkert nema tónlistarbúðir og svona töff pöbbar. Þetta voru svona litlar grams búðir, bæði nýtt og notað þar, mjög gott úrval og mikið af stöffi sem ekki er hægt að fá hér, t.d. Mesa Boogie, Hiwatt, Laney og Orange magnarar og Zvex effektar. Verðin þarna voru því miður of svipuð...