Ég kannast við þennan grábláa, rosalega fallegur bíll, þetta er 315 ef ég man rétt, örugglega nýbúið að gera hann upp, hann er allavega nýsprautaður. Eina sem er að honum er að hann er á 17" álfelgum undan Toyota, ekkert ljótar felgur samt.
Ég veit ekki hvað maður á að borga fyrir svona bíl, en miðað við það sem ég hef séð á mobile.de er hægt að fá þessa bíla keyrða í kringum 100 þús. á svona 1 til 1.3 millur, þannig að það er hægt að fá þessa bíla hingað á svona rúmlega 2 millur sem er nú bara fínt finnst mér. Og það er alveg satt, þessi M3 þarna uppi á Höfða lítur alveg hrikalega illa út og mig minnir að það hafi verið sett á hann 2.950.000 kr. sem er bara gjörsamlega út í hött.
Vá, takk þetta var akkúrat það sém ég þurfti að vita. Það er ekkert af svona bílum eins og ég er að spá í, ég er nebblega að spá í E36 M3 og mig langar ekki í bláan með blæa sem lítur út eins og honum hafi verið ekið fram af kletti:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..