Það voru 2.390 áhorfendur sem sáu Atla Eðvaldsson stjórna landsliðinu í sínum fyrsta leik á Íslandi.Þegar Ísland fékk Möltu í heimsókn síðast,árið 1996,mættu aðeins 950 áhorfendur á völlinn.Samtals hafa 3.288 áhorfendur séð leikina fjóra,sem Atli hefur stýrt landsliðinu í.500 áhorfendur sáu jafnteflisleik gegn Noregi í NM-leik á La Manga á Spáni sl.janúar,0-0.350 sáu Ísland vinna Finna á sama stað,1-0.Aðeins 48 sáu Íslendinga vinna Færeyinga á La Manga,3-2.