Mér hefur fundist framvinda síðastliðinna atburða í sambandi við boxið vera nokkuð athyglisverð og hún vekur mig til umhugsunar hvort fjölmiðlamenn og aðrir málglaðir einstaklingar séu að vinna vinnuna sína eftir bestu getu. Fíkniefnamálið sem við öll ættum að þekkja var blásið út í fjölmiðlum sem mikið reiðarslag fyrir hnefaleikaíþróttina vegna þess að tveir menn klæddir einkennisbúningum sem hnefaleikamenn höfðu áður notað voru stöðvaðir með fíkniefni á leið til landsins og því var kastað...