Kæru meðspilarar, Þykir mér nú margt stefna í hraðbyri niður á við hér hjá okkur, þessar síðustu vikur eða svo. Sýnist mér í fljótu bragði hver andans maður á fætur öðrum hverfa á brott úr heimi okkar Counter-strækera og söknuðurinn eðlilega mikill. Sakna ég þá einna mest hinna gífuryrtu GGRN-liða sem fóru mikinn hér á ritvelli Huga fyrir nokkrum mánuðum síðan, en eins og máltækið segir þá glymur oft hæst í tómri tunnu og þeir virðast dauðir úr öllum æðum. Fóru þar fremst í flokki drengir...