Já, ég er búin að vera með annan fótinn inni hjá Furðufuglunum og fylgifiskunum síðustu vikuna, því loksins loksins er kominn ástargauks ungi hada mér! Ég sá hann fyrst fyrir viku síðan, og kolféll alveg fyrir honum, þrátt fyrir að hann væri fjaðurlaus og hálfblindur, hann var samt fallegasti fugl sem ég hafði á ævi minni séð :) Ég hafði spes óskað eftir því að fá peach face, en lét blue mask til vonar og vara. En þegar ég sá svo litla krílið, án þess að hafa hugmynd um hvernig hann myndi...