Ég er ekki par ánægð með það sem ég er farin að sjá hverja einustu helgi í miðbænum. Ég gekk framm á mann liggjandi í götunni milli Dubliners og Victors og það hélt honum einn dyravörðu niðri, ekki veit ég hvað maðurinn hafði gert en enginn verðskuldar barsmíðar. Þá komu tveir dyraverðir af victor askvaðandi og beint á manninn, svo tóku þeir í fótinn á honum og hendina og drógu hann eftir götunni upp á gangstéttina, ekki bara úr umferðinni, heldur 30 metra til viðbótar!! Alveg að bankanum...