Pabbi og mamma eru tónlistarmenn og spila allt milli himins og jarðar. Ætli jazzinn hafi ekki komið inn í mig þá, en svo hef ég farið á óteljandi jazztónleika, t.d. með Svend Asmussen fiðlara, Robin Nolan Trio, Pearl Django, Kjartani Valdemarssyni píanóleikara og svona mætti lengi telja. Fyrst er ég heyrði jazz hef ég verið nýkomin í heiminn býst ég við, og hef svo hlustað á hann innlendis sem erlendis, að vetri, sumri, vori og hausti og nú er ég alger jazzfíkill…