Einn stærsti boxviðburður á Íslandi verður 18. mars næstkomandi þegar öll skráð hnefaleikafélög innan ÍSÍ munu halda árshátíð saman. Kvöldið mun byrja með þriggja rétta máltíð á Hótel Íslandi, Broadway. Eftir matinn mun ein stærsta boxkeppni ársins vera haldin þar sem öll hnefaleikafélögin munu seta saman lið með sínum bestu boxurum og taka á móti liði frá Bretlandi. Sýn mun sjá um að taka upp keppnina og senda beint. BBC mun einnig koma með tökulið, taka upp kvöldið og sýna hjá sér á...