Þessi grein birtist upphaflega í pönkblaði sem ég gerði, sem hét Aumingi. Ég ákvað að birta hana hér vegna korks sem einhver skrifaði í sambandi við pönk og anarkisma. Ég komst inn í pönktónlist þegar ég var 14 ára gamall. Í gegnum pönkið kynntist ég anarkisma sem og ýmsu um dýraréttindi og umhverfismál. Ég varð strax heillaður af hugmyndum anarkista og sökkti mér í texta frá hinum og þessum spekingum. Ég tók allar þessar hugmyndir sem ég las um og með árunum mótaði ég mína eigin sýn á...