Sæl öll, Langaði bara að vekja athygli á því að Sambíóin tóku þá ákvörðun að sýna nýju Disney myndina, The Princess and the Frog, aðeins á íslensku í bíóum! Ég er alveg einstaklega ósátt við þessa ákvörðun, enda finnst mér að myndir njóti sín alltaf best á upphaflega tungumálinu. Ég hringdi á skrifstofuna þeirra og þeir staðfestu þetta, hún væri bara í sýningu á íslensku núna, var víst eitthvað nýtt sem þeir vildu prófa. Mér finnst nú óþarfi að vera með tilraunastarfssemi á nýjustu...