Hei gerðist fyrir mig næstum það sama á föstudaginn síðasta. Ég kom heim úr strætó og labbaði í svona 10 mín heim allt útí snjó og þegar ég er loksins kominn að útidyrunum þá fatta ég að ég gleymdi lyklunum um morguninn. Og plús síminn var batteríslaus svo ég labbaði útí sjoppu í snjó og veseni og þurfti að borga 50kr til að hringja í pabba og biðja hann um að sækja mig. Ég hata snjó og strætó.