Eins og flestir vita eflaust héldu Noise útgáfutónleika í tilefni útkomu fyrstu plötu þeirra ,Pretty Ugly, á Gauknum í gær ásamt Lokbrá. Var ég það heppinn að vera viðstaddur þessa frábæru tónleika. Lokbrá hófu kvöldið með stæl. Það sem einkennir lokbrá hvað helst er mjög mikil spilagleði og þéttleiki. Lagasmíðar þeirra eru líka í hæsta gæðaflokki. Lokbrá spiluðu í tæpan klukkutíma og voru frábærir! Sérstaklega fannst mér lagið, sem þeir kölluðu Pretty Ugly og sögðu að noise menn hefðu...