já, ég var sum sé í búðinni áðan og var eitthvað að skoða og sá þá ömmu og mömmu með einn krakka, mér sýndist á þessu að krakkinn hafi átt að velja sér eitthvað að drekka, því hún hélt á powerade eða eitthvað og amman, í staðinn fyrir að seeeegja bara að svona væri ekki í boði, nánast argaði á krakkann ‘það er ekkert svona orku kjaftæði!!!!’, srsly, þetta heyrðist örugglega yfir alla búðina. Þá brást krakkinn við á versta veg auðvitað (bæði að fá ekki það sem hún vildi og það var öskrað á...