Ég lenti í bílslysi, og hef ekkert getað unnið síðan, þetta var arið 2000. Ég hef alltaf átt hund eða hunda, og þeir hafa bókstaflega bjargað mínu sálartetri, ég þarf að hreyfa mig mikið, og geng því mikið, einu sinni bað vinkona mín mig um að hjálpa sér með hundinn sinn, hann gengdi engu og bókstaflega dró hana með sér ef hún nennti að fara með hann út að ganga, en hún var eiginlega hætt að nenna því vegna þess að hún skammaðist sín svo mikið, hún fór á þjálfunarnámskeið hjá HRFÍ en fékk...