Jæja, nú er ég kominn með upp í kok af þessu fólki sem er alltaf að röfla um það að við eigum að hætta að dissa það hvernig það klæðir sig, hvernig það meikar sig og hvernig það hegðar sér og þar fram eftir götunum. Hvaða fólk er ég að tala um, jú ég er að tala um þetta fólk sem aðhyllist svokallaða Goth tísku, klæðir sig í allt svart, notar svartan varalit, hvítt meik og o.s.frv. Þið vitið öll um hvaða fólk ég er að tala. Ef þetta fólk myndi nú bara klæða sig í þau föt sem það vill vera í...