<i>Mig langar að finna þig, sjá þig, komast að því hvar þú ert, og þegar ég er búinn að finna þig þá ætla ég að kreista þig og kreista þig og kreista þig svo ekkert verður eftir. Þetta er staðurinn, hérna verður þú eftir. Sérðu veggina, þeir eru berir, kaldir, gráir, harðir. Sérðu gólfið, það er brúnt, blautt, mjúkt, sleipt. Sérðu loftið, það er hærra en þú getur nokkurn tímann náð. Sérðu mig. Sérðu mig. Horfðu á mig. Þú verður að horfa á mig. Ekki gráta, þú þarft ekki að gráta enn – ertu í...