Mig hafði langað í kött svo lengi, við erum að tala um meira en 1 og hálft ár hérna. Hafði suðað eins mikið og hægt var í kærastanum mínum um hvað mig langaði í kött og hvað við hefðum alveg gott af því að fá eina litla inn til okkar. Hann neitaði mér alltaf, en samt sem áður eitthverra hluta vegna, hélt ég í vonina, vissi ekki afhverju ég gerði það. En samt sem áður gerði ég það. Það var orðinn svo langur tími sem leið og var kominn tími til að fara í réttir í Borgarfirði. Svo við fórum...