Hmm, ef ég má vera svo djarfur að koma með mitt álit. Þá verð ég að segja að Brain Police hafi liðið fyrir það að hljóðkerfið var óstillt greinilega þegar þeir byrjuðu, þeir urðu betri og þéttari með hverju lagi, “mixið” varð betra. Mínus fengu vel tjúnað kerfi upp í hendurnar, og ég verð að játa nutu sín mun betur á svona stóru sviði þó svo að tónlistin finnist mér ekki upp á marga fiska. En það er auðvitað bara mitt álit, en ég held samt að það fari ekki á milli mála hvaða band stóð upp úr...