Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2000/2001 skuli renna til félaga í efstu deild í öllum aðildarlöndum sambandsins til eflingar knattspyrnu barna og unglinga hjá þessum félögum. Úthlutunin nær að þessu sinni til þeirra félaga sem léku í efstu deild á Íslandi sumarið 1999. Knattspyrnusamband Íslands hefur sett ákveðin skilyrði sem íslensku félögunum ber að fara eftir: 1) Greiðslan...