Ég boða frjálst þema, og vonandi tekur einhver þátt :) Annars fyrir þá sem finnast gaman að teikna eftir þemum og vilja komast í aktívari hóp mæli ég með íslensku síðunni á da, http://icelandic-deviants.deviantart.com/ Vanalega nóg í gangi þar. En endilega takið þátt hérna líka :)
Nú hef ég tekið eftir því upp á síðkastið að þáttaka í keppnunum okkar hefur minkað gífurlega. Nú var þema í gangi og enginn sendi inn mynd. Nú langar mig að spyrja, hver teljið þið ástæðuna? Leiðinleg þemu, minni tími eða hvað er málið? Endilega segið ykkar skoðun svo að það sé hægt að lífga upp á þetta aftur þar sem þetta er rosalega skemmtilegt þegar margir taka þátt.
Eru bara allir að deyja úr prófum, ekki í jólafíling eða bara ekki að nenna þessu? Senda inn fleirir myndir, það er bara 1 komin inn! Þó það sé ekki eitthvað fullkomið, skemmtilegra að fá eitthvað en ekki neitt :D
Halló krakkar. Ég þarf sennilega að draga mig til hlés þar sem ég hef það mikið að gera og ætla þá að sjá aðeins um fyrra áhugamálið mitt, myndlist. Ef einhver hefur áhuga að koma sem stjórnandi hingað inn endilega látið vita í þessum þræði. En þetta þarf að vera einhver duglegur sem nennir að rífa þetta áhugamál verulega upp. Ef einhver áhugi er fyrir því skal ég benda yfirstjórnendum á að einhverjir ætli að senda inn umsóknir.
Hérna skulu þemahugmyndir koma inn! Gamlar þemahugmyndir eða svipuð þema koma til greina. Svo var ég að pæla, hvað finnst ykkur um að það verði að koma inn allavega 3 myndir til þess að keppni fari í gang. Þ.e.a.s að keppni er framlengd þar til þær eru allaveg a 3. Eða eitthvað. Gaman gaman.
Dulspeki hefur verið færð yfir á lífstíl af því að yfirvaldinu finnst það miklu meira kúl. Annars, ætla ég að biðja þá sem hefðu áhuga á að koma inn sem stjórnandi á dulspeki að gefa sig fram. Einhver sem nennir að fylgjast með áhugamálinu daglega og reyna sitt besta að rífa það upp, senda inn greinar og svo framvegis. Því miður með nýjum skóla hef ég ekki tíma fyrir tvö áhugamál og ætla því brátt að yfirgefa þessa stjórnendastöðu. En vonandi ekki fyrr en nýtt blóð kemur inn.
Halló. Það vill svo til að ég er enginn græjusnillingur en ég er að leita að stórum þrífót fyrir gjöf. Getiði mælt með einhverjum góðum gerðum eða búðum með mikið úrval? Og ekki endilega stærsta og feitasta þrífótinn en eitthvað sem er ágætlega stillanlegt og er gæðagripur. Og hvernig er þetta, virka þrífótar fyrir flestar myndavélar eða eru þeir sérhæfðir eftir tegundum véla? Þakka öll svör!
Lélegt, ég veit að þið eruð öll að byrja í skólanum en sendið nú einhverjar myndir inn. Það er bara ein komin, ég ætla að gera mitt besta að setja eina inn en hvað um ykkur? Ég get lengt frestinn um 5 daga ef áhugi og loforð um að senda inn myndir koma fram. Þið eruð yndisleg.
Nennti ekki að teikna um daginn og ákvað því að lita gamla mynd síðan 2008. Alltaf gaman að vinna upp úr gömlum myndum öðru hverju. Annars stærra hér: http://ameza.deviantart.com/art/Felecia-Yates-recolouring-173192712?q=&qo=
Jæja krakkar, ég er að skella mér í frí og þar sem það er lítið um internet uppi á hálendi mun ekker heyrast í mér fyrr en mánudaginn 9. ágúst. Hagið ykkur nú vel ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..