En ef ég gef henni bland í poka þá er ég að eyða næstum 200kalli. :) Já, ég lifi alveg af þeim. Tek pening til að kaupa mér eitthvað að borða, geymi svo afganginn og læt hann inná banka. Ég er svo sneaky. Ætla að láta þau borga hluta af bensíni því þau láta mig oft keyra systkini mín. :)
Sjómann úúúú… Koddí sjómann! Ég bý hjá foreldrunum. Rétt orðin 18. :) Ég er að safna flöskum, er í hörku stríði við 11 ára gamla systur mína um flöskur heimilisins. Mamma og pabbi halda með henni. Ég er komin með 2 flöskur. Einni stal ég, hina á ég. :)
Er með ósnertan pening á framtíðarreikning. Sem þýðir að þótt ég sé orðin 18 ára, ef hann er óhreyfður þá fæ ég ennþá vextina. Sem eru hæstu vextirnir. Svo er ég með sparileið 60. Fæ háa vexti.
Já. Við erum nefnilega að gera það sama, alveg hægt að bera okkur saman. En ég fer út í “the extremes”…. Fara með flöskur, leita að gömlu “týndu” klinki. Sleppa “nammidögum”. Hver heldurðu muni græða meira? Held nú bara… ég!
Jámm, ég er akkúrat búin að segja við vinnuveitendur mína að hringja í mig fyrst af öllum ef vantar á vaktir. Það er búið að hringja í mig 5 sinnum, ég var að byrja, er búin að taka allar aukavaktir.
Er með heiftarlegt gróðurofnæmi. En er þegar búin að bjóðast til að þrífa hús á frídögum fyrir ættingja fyrir lítinn pening. Ég er desperate! Takk samt. ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..