Þú átt fyrst og fremst að hugsa um sjálfa þig, og gera það sem þig langar. Ekki láta stráka vaða yfir þig! Ef þú ert hrædd um að særa þá, þá er það ekki þitt vandamál. Það er ekki þér að kenna að þeir séu hrifnir af þér. Segðu bara að þú sért ekki tilbúin í samband eins og er, eða að þú sért ekkert hrifin af þeim, því miður. En eins og ég segi, ekki vera með einhverjum til að þóknast honum.