Takk kærlega! Þetta svínvirkaði fyrir litina, en þá er komið upp annað vandamál, sem var reyndar til staðar fyrir en ég hélt að væri tengt litavandamálinu, ég get ekki séð bíómyndir! Ég heyri hljóðið og allt í góðu með það en myndflöturinn er bara svartur. Þá er nú til lítils að hafa TV-out ef maður getur ekki spilað videoin í sjónvarpinu. Kannast einhver við svipað vandamál?