Já ég veit hvað þú meinar, kettirnir mínir voru einmitt svona “næmir”. Þeir voru oft mjög hræddir við að fara inn í stofuna heima hjá mér, en þar hafði einmitt fólk með “gáfu” sagt mér að þar sæti maður. Þeir komu oft hlaupandi úr stofunni með úfið skott eða þeir ætluðu kannski að fara þangað inn en snarhættu við á síðustu stundu og spóluðu í burtu með úfin skott. Svo að ég hef fulla trú á að þeir skynji og sjái ýmislegt sem við gerum ekki.