Já ég tek nú undir með öðrum hér, hættu að tala við þessar “vinkonur” þínar, þetta er eitthvað sem sannur vinur myndi aldrei gera. Og afsökunin sem þær hafa finnst mér nú fyrir neðan allar hellur “þeir byrjuðu” - en þær tóku þátt ekki satt ? Ekki voru þær píndar í þetta. Þetta eru bara mjög ómerkilegar manneskjur sem þú ættir að halda þig frá. Gangi þér vel ! Kveðja Alfons