Það er undarlegt að hugsa til þess að þegar við tölum í síma, þá erum við öll á sama helvítis staðnum, grunneti Landsímans, sem er í raun okkar eign þar sem skattpeningar hafa verið notaðir í tugi ára til að borga það. Nú á líklega að selja þetta net með Landsímanum, og líklegustu kaupendurnir eru útlendingar, eða ríkir Íslendingar. Alþingi gefur leyfi til þess að selja þjóðareign. 63 menn og konur (ekki allir, VG -6) afhenda eign 200.000 manns. Þetta er eins og ég seldi bílinn þinn fyrir...