Linda Þetta er ótrúlegt. Ég man þegar ég var ungur, kannski um 7 ára þá dó eldri maður sem vann hjá foreldrum mínum sem mér þótti alltaf vænt um dó. Nú man ég ekki hvað leið langur tími á milli en kvöld eitt var ég að fara að sofa og horfði á dyrnar þá sá ég hvíta veru standa þar og brosa til mín, ég sá ekki hver þetta var en “fann” að þetta var hann, svo sofnaði ég á stundinni áður en ég gat sagt eitthvað. Það sem þú getur gert er að biðja hann fallega um að hætta, ef ekki tala þá við miðil.