Reynsla fortíðar eflir löngun þína til að takast á við velgengni í starfi. Hér kemur fram að þú hafir tekist á við þjáningar einhverskonar í æsku eða vandamál sem efla kjark þinn og vilja til að ná árangri. Þú býrð yfir styrk á við heilan her. Ásetningur þinn skapar þér framtíð en þekking þín sýnir fortíð þína. Lærðu af fyrri mistökum og árangur næst fyrr en þig dreymir um.