Þrettándi kapítuli „Skák og mát,” sagði Ron yfirvegað en Hermione, sem lék svartan, hnyklaði brúnir svekkt. „Ég hef telft við þig í ein fimm ár og mér hefur enn ekki tekist að sigra þig almennilega!“ sagði hún, „Ég veit að þú leyfðir mér að vinna í það skiptið Ron,“ bætti hún svo við áður en hann náði að opna munninn. Þau sátu við borð á heimavistinni, búin með heimalærdóminn, og voru að klára taflspil. Eins og venjulega hafði Ron farið með sigur af hólmi, enda var hann ókrýndur konungur...